Helgi Ólafsson sigrađi á afmćlismóti TV.

TV-Fyrsti-leikur  Afmćlismót Taflfélags Vestmannaeyja sem haldiđ var í tilefni 90 ára afmćlis TV fór fram um síđustu helgi. Mótiđ var mjög vel skipađ og keppendur voru  24, ţar af tíu félagsmenn í TV. Međal keppenda voru fimm skákmeistarar međ alţjóđlega titla, ţar af einn stórmeistari. Keppt var í skáksetri TV viđ Heiđarveg og var mótiđ svokallađ atskákmót, umhugsunartími 20 mín. á skák á hvorn keppenda og 5 sek. til viđbótar fyrir hvern leik. Hver umferđ tók um 60 mínútur. Mótiđ hófst kl. 12.00 á laugardag og voru ţá tefldar fimm umferđir. Keppendum var bođiđ í rútuferđ um Heimaey í lok fyrri dags. Á sunnudag voru tefldar fjórar umferđir og lauk mótinu síđdegis međ verđlaunaafhendingu. Landsbankinn var helsti styrktarađili afmćlismótsins. Sigurvegari á afmćlismótinu varđ Helgi Ólafsson, stórmeistari međ 8 vinninga af níu mögulegum. Í 2.-3. sćti urđu Davíđ Kjartansson og Oliver Jóhannesson, báđir FIDE meistarar međ 6,5 vinninga. Í 4.-6. sćti urđu Ólafur Hermannsson TV, Sćvar Bjarnason alţjóđlegur meistari og Stefán Bergsson, allir međ 5,5 vinninga.

  Í mótslok  flutti sigurvegarinn Helgi Ólafsson ávarp og sagđi frá uppvaxtarárum sínum í skákinni í Eyjum, 1968-1973. Fjölskylda Helga bjó hér um árabil og fađir hans Ólafur Helgason var  bankastjóri útibús Útvegsbanka Íslands í Eyjum á miklum umbrotatímum í tengslum viđ eldgosiđ 1973 og uppbygginguna í kjölfar ţess. Helgi hefur ávallt veriđ í góđu sambandi viđ sitt uppvaxtarfélag í skákinni og oft á tíđum teflt fyrir félagiđ á Íslandsmóti skákfélaga.

  Arnar Sigurmundsson formađur TV lýsti ánćgju sinni međ framkvćmd mótsins og ţakkađi Vestmannaeyjabć og fjölmörgum fyrirtćkjum fyrir stuđninginn viđ félagiđ á liđnum árum. Ţá sagđi hann mjög ánćgjulegt ađ nú er hafin á ný formleg skákkennsla í Grunnskóla Vestmannaeyja og kennari viđ GRV orđinn skákkennari. Nú er unniđ ađ undirbúningi ađ skákkennslu í Hamarsskóla, en margir skólar á höfuđborgarsvćđinu og úti á landi eru međ skákkennslu á námsskrá í ákveđnum árgöngum.


Skrár tengdar ţessari bloggfćrslu:

Skráning á afmćlismótiđ hafin á skak.is

Merki 90 ára afmćlismóts Taflfélags Vestmannaeyja.


Taflfélag_Vestmannaeyja_90 ára_GunnarJúl8440806

  Helgina 10.-11. september 2016 fer fram atskákmót í Eyjum í tilefni af  90 ára  afmćli Taflfélags Vestmannaeyja.

  Keppendur verđa úr Eyjum og á fastalandinu. Reiknađ er međ ađ keppendur ofan af landi komi međ Herjólfi laugardaginn 10. september, frá Landeyjahöfn kl. 09.45 og til Eyja um kl. 10.30.  Akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar tekur tćplega 2 klst. og ţurfa farţegar og ökutćki ađ vera mćtt 30 mín. fyrir brottför Herjólfs frá Landeyjahöfn.  Algengt er ađ farţegar geymi ökutćki sín á bílastćđum í Landeyjahöfn međan á dvöl ţeirra í Eyjum stendur.

  Fyrsta  ferđ til Landeyjahafnar frá Eyjum ađ loknu skákmótinu er kl. 18.30 sunnudaginn 11. sept og nú síđasta ţann dag kl. 21.00 um kvöldiđ. Mćting um borđ 30 mín. fyrir brottför.

  Tefldar verđa níu umferđir, umhugsun 20 mín. á skák auk 5 sek. á hvern leik. Reiknađ er međ ađ umferđin taki um 60 mín. Skákstjóri verđur Stefán Bergsson.

Laugardagur 10. sept. 2016

Kl. 12.00 – 17.00  Tefldar verđa fimm umferđir fyrri daginn.

Kl. 17.00 – 18.00   Skođunarferđ međ rútu um Heimaey.

Sunnudagur 11. sept. 2016

Kl. 12.00 - 16.00   Tefldar verđa fjórar umferđir seinni daginn.

Kl. 16.30 – 17.00   Mótsslit og verđlaunahending.

Ekkert ţátttökugjald á atskákmótinu og í skođunarferđina.

  Fyrstu verđlaun verđa 75 ţús. kr., önnur verđlaun 50 ţús. kr. og ţriđju verđlaun 25 ţús. kr. Landsbankinn er helsti stuđningsađili mótsins.

  Nánari upplýsingar um ferđir til  og frá Eyjum á  herjolfur.is og gistingu í Eyjum  á visitvestmannaeyjar.is   

Skráning ţátttakenda á 90 ára afmćlismótiđ  fer fram á Skák.is.

Upplýsingar um ţegar skráđa keppendur má finna hér

Afmćlisnefnd Taflfélags Vestmannaeyja


90 ára afmćlismót Taflfélags Vestmannaeyja

  Hinn 26. ágúst 2016 verđa 90 ár síđan Taflfélag Vestmannaeyja var stofnađ og af ţví tilefni verđur blásiđ til veglegs afmćlismóts helgina 10 til 11. september n.k.

  Öllum skákunnendum er heimil ţáttaka í mótinu og reiknađ er međ auđveldum samgöngum ţessa daga til Eyja. En Herjólfur gengur laugardaginn 10. sept. frá Landeyjahöfn kl. 09.45 og komiđ er til Eyja um kl. 10.30. Akstur frá Reykjavík til Landeyjahafnar tekur tćplega 2,0 klst. og ţurfa farţegar og ökutćki ađ vera mćtt 30 mín. fyrir brottför frá Landeyjahöfn. Einnig er unnt ađ geyma ökutćki á bílastćđum í Landeyjahöfn međan á dvaliđ er í Eyjum.

Eftir ađ skákmótinu líkur er nćsta ferđ til Landeyjahafnar kl. 18.30 sunnudaginn 11. sept. og sú síđasta ţann dag kl. 21.00 um kvöldiđ.

Tefldar verđa níu umferđir, umhugsun 20 mín. á skák auk 5 sek. á hvern leik.

DAGSKRÁ AFMĆLISMÓTSINS

Laugardagur 10. sept. 2016

Kl. 12.00 – 17.00  Fyrstu 5 umferđir afmćlismótsins tefldar.

Kl. 17.00 – 18.00  Skođunarferđ međ rútu um Heimaey.

Sunnudagur 11. sept. 2016

Kl. 12.00 - 16.00   Síđustu 4 umferđir afmćlismótsins.

Kl. 16.30 – 17.00   Mótsslit og verđlaunafhending.

Ekkert ţátttökugjald er á atskákmótiđ né í skođunarferđina.

Fyrstu verđlaun verđa 75 ţús. kr., önnur verđlaun kr. 50 ţús. kr. og ţriđju verđlaun kr. 25 ţús. kr.

Nánari upplýsingar um ferđir til og frá Eyjum er ađ finna á herjolfur.is og gistingu í Eyjum á visitvestmannaeyjar.is  Skráning ţátttakenda á mótiđ á netfangiđ odalsbondi@gmail.com

Afmćlisnefnd Taflfélags Vestmannaeyja


Páskaeggjamót TV 2016

  Páskahrađskákmót TV 2016 fór fram laugardaginn 26. mars og hófst kl.14:00 í skáksetrinu viđ Heiđarveg.

  Alls mćttu 11 keppendur til leiks og var tefld einföld umferđ, međ tímamörkum 5mín + 3sek. á leik.

  Tefldar voru 11 umferđir, 10 skákir međ ţáttöku skottu.

  Jafnir og efstir í fyrsta sćti urđu Sigurjón Ţorkelsson og Einar Sigurđsson međ 10 vinninga og töpuđu ţeir eingöngu einni skák. Ţeir ţurftu ţví ađ tefla úrslitaskák um sigurlaunin og hafđi Sigurjón ţá betur.

  Í 3ja sćti varđ Einar B. Guđlaugsson međ 6,5 vinn., en síđan komu nokkrir međ 6 vinninga og loks ađrir á bilinu 3,0-5,5 vinninga.

  Í mótslok fékk Sigurjón afhent stórt og myndarlegt páskaegg til eignar, en ađrir keppendur agnarsmá gullegg.

  Mótiđ endađi á ţví ađ keppendur lásu málshćttina, hver úr sínu eggi.

  Fyrirhugađ er ađ halda Hrađskákmeistaramót Vestmannaeyja 2016 í apríl eđa maí nk. og verđur ţađ auglýst sérstaklega. 

  Á nćstu fimmtudagskvöldum kl. 20.00 verđa skákćfingar í skáksetrinu viđ Heiđarveg.


Skákţing Vestmannaeyja - heildarúrslit

  Nú fyrir stuttu lauk Skákţingi Vestmannaeyja, eins og greint hefur veriđ frá hér á síđunni og Stefán Gíslason er nýkrýndur Skákmeistari Vestmannaeyja.

  Hér er lokastađan í töflu :

Skákţing Vestmannaeyja 2015

 

 

SG

EG

ŢÓ

AS

GE

Vinn.

Stefán Gíslason

X

1

˝

1

˝

1

4

Sigurjón Ţorkelsson

0

X

1

˝

1

1

3,5

Einar B. Guđlaugsson

˝

0

X

1

1

1

3,5

Ţórarinn I. Ólafsson

0

˝

0

X

1

1

2,5

Arnar Sigurmundsson

˝

0

0

0

X

1

1,5

Gísli Eiríksson

0

0

0

0

0

X

0


Stefán Gíslason skákmeistari Vestmannaeyja 2015

Nú er nýloknu Skákţingi Vestmannaeyja 2015.

Hinn gamalkunni skákmađur, Stefán Gíslason sigrađi og er ţví Skákmeistari Vestmannaeyja 2015. Stefán hefur lengi teflt međ félaginu og tekiđ ţátt í flestum mótum ţess síđustu áratugi, en ţetta er í fyrsta sinn sem hann hlýtur hinn eftirsótta titil. Stefán hlaut 4 vinninga af 5 mögulegum og varđ einn efstur á skákţinginu.

Keppendur á Skákţinginu ađ ţessu sinni voru 6, en auk Stefáns tóku ţátt ţeir Sigurjón Ţorkelsson, Ţórarinn I. Ólafsson, Arnar Sigurmundsson, Einar B. Guđlaugsson og Gísli Einarsson, en flestir ţessir eru gamalkunnir skákmenn í félaginu.

Í 2-3 sćti urđu ţeir Sigurjón og Einar, jafnir međ 3,5 vinninga.

Stefán er vel ađ titlinum kominn, enda vel ađ sér í skákfrćđunum, en ţađ er kannski hin eđlislćga hógvćrđ Stefáns sem veldur ţví ađ hann hefur ekki unniđ ţennan titil fyrir löngu síđan. Um ćvi og störf Stefáns má lesa á: http://www.heimaslod.is/index.php/Stef%C3%A1n_G%C3%ADslason


90 ára afmćlismót TV 9.-11. september 2016

  Taflfélag Vestmannaeyja verđur 90 ára í lok ágúst á nćsta ári, en ţađ var stofnađ 26. ágúst 1926. Ţađ er ţví međ elstu starfandi taflfélögum landsins og eitt elsta tómstundafélagiđ í Eyjum. 

  Stjórn félagsins hefur ákveđiđ ađ halda veglegt afmćlismót af ţessu tilefni helgina 9.- 11. september 2016 í Vestmannaeyjum og bjóđa velunnurum félagsins, Eyjamönnum og skákmönnum yfirleitt upp á skemmtilegt mót og hugsanlega eitthvađ fleira í tilefni af ţessum merku tímamótum í sögu félagsins og Vestmannaeyja.

  Undirbúningsnefnd 90 ára afmćlismótsins hefur ţegar fundađ og undirbúningur er ađ fara á fullt skriđ.


Skákţing Vestmannaeyja 2015

Nú líđur senn ađ ţví ađ Skákţing Vestmannaeyja 2015 verđur haldiđ í Vestmannaeyjum. Reiknađ er međ ţví ađ ţađ hefjist í lok október og standi megniđ af nóvembermánuđi. Ađ ţessu sinni gćti boriđ til tíđinda, ţar sem ýmsir gamlir meistarar hafa sýnt áhuga á ađ taka ţátt, ţ.á.m. Arnar Sigurmundsson, Einar B. Guđlaugsson, Sigurjón Ţorkelsson og Ćgir Páll Friđbertsson ađ ónefndum Stefáni Gíslasyni og Ţórarni Inga Ólafssyni. Á síđasta ári féll keppnin niđur, en áriđ 2013 sigrađi Nökkvi Sverrisson og er hann ţví enn titilhafi. Fyrst var keppt um titilinn 1926 og sigrađi ţá Ólafur Magnússon frá Sólvangi. Sá sem oftast hefur orđiđ meistari er Sigurjón Ţorkelsson eđa 11 sinnum, en nćstir koma ţeir Kári Sólmundarson, 9 sinnum, Björn Ívar Karlsson, 5 sinnum, en ţeir Einar B. Guđlaugsson, Sverrir Unnarsson og Arnar Sigurmundsson hafa unniđ titilinn 4 sinnum hver.

Lengstur tími frá ţví sami mađur vann titilinn fyrst og síđan aftur er hjá Sigurjóni Ţorkelssyni, eđa fyrst 1986 og síđast 2006 eđa 21 ár, nćstur kemur Arnar Sigurmundsson,(fyrst 1964 og síđast 1979, eđa 15 ár) síđan kom tveir sem hafa gert ţetta á áratug, ţeir Kári Sólmundarson (1975 og 1985) og Börn Ívar Karlsson (2001 og 2011).

Ţrír menn hafa unniđ titilinn fjórum sinnum í röđ, en ţađ eru ţeir Einar B. Guđlaugsson 1965-68, Kári Sólmundarson 1975-78 og Björn Ívar Karlsson 2008-11.

Gaman er ađ segja frá ţví ađ međal meistara má sjá nokkur skyldmenni, t.d. Björn Ívar yngri og eldri, en sá yngri er sonarsonur ţess eldri, einnig má finna ţarna feđgana Sverri Unnarsson og Nökkva Sverrisson.  Margt fleira og lista yfir titilhafa má lesa á hinum frábćra vef um Vestmannaeyjar; Heimaslóđ, undir Taflfélagi Vestmannaeyja; http://www.heimaslod.is


Arnar aftur formađur eftir 53 ár

  Hinn 5. september s.l. fór fram ađalfundur Taflfélags Vestmannaeyja. Fram kom ađ afkoma félagsins hefur veriđ góđ undanfarin ár, en mest púđur hefur fariđ í ţátttöku félagsins á íslandsmóti skákfélaga og höfum viđ veriđ ţar međ vaska sveit innlendra og erlendra skákmanna á okkar snćrum undir öruggri stjórn liđsstjóra okkar, Ţorsteins Ţorsteinssonar. Ţrátt fyrir alla ţessa viđleitni međ gífurlega sterkum skákmönnum, ţá tókst okkur ekki ađ landa titlinum en urđum 4 sinnum í 2 sćti og jafnoft í ţví ţriđja síđustu 11 ár, en margir myndu telja góđan árangur. Á engan er hallađ ţó segja megi ađ hitann og ţungann af A-sveitinni hafi Ţorsteinn (Stone) boriđ og er honum ţakkađ góđ störf fyrir félagiđ. Ţá er ekki úr vegi ađ ţakka hollum liđsmönnum félagsins, sem nú eru horfnir til annarra félaga, en ţetta eru ţeir ; Helgi Ólafsson GM, Björn Ívar Karlsson, Ingvar Ţór Jóhannesson, Henrik Danielsen GM, Sigurbjörn Björnsson, Kristján Guđmundsson og Björn Freyr Björnsson. Takk strákar, viđ tökum ţetta síđar !

  Ţađ var ţó alltaf jafnljóst ađ sinna ţyrfti starfinu í heimahögunum, reyna ađ byggja upp starfiđ í Eyjum, lagfćra húsnćđi félagsins og greiđa niđur lán á húsnćđinu, en allt ţetta hefur ađ undanförnu setiđ á hakanum.

  Ţađ var ţví tímamótaákvörđun sem tekin var í sumar ađ draga liđ okkar úr keppni í 1 deild og bakka "down to the basics" og senda skrapliđ í 4 deild. Ţađ tókst ágćtlega og ánćgjulegt ađ nokkrir strákar sem ekki hafa teflt lengi létu sjá sig og stóđu sig bara fjári vel.

  Á ađalfundinum voru lagđar línur í ţessa veru. Ţegar kom ađ stjórnarkjöri kom fram ađ formađurinn, Ćgir Páll gćfi ekki kost á sér áfram, ţar sem hann er ađ flytjast búferlum frá Eyjum. Formađur var ţví kjörinn, Arnar Sigurmundsson sem hefur veriđ skođunarmađur reikninga í einhver ár eđa áratugi. Ţađ sem er athyglisvert viđ formannskjör Arnars er ađ hann var síđast kjörinn formađur í félaginu haustiđ 1962 eđa fyrir 53 árum síđan og er líklega vandfundiđ ţađ félag sem hefur á ađ skipa jafn dyggum félagsmönnum. Gott er til ţess ađ vita ađ fleiri formenn frá sjöunda áratugnum eru enn virkir í félaginu,t.d. bćđi Andri Valur Hrólfsson og Ólafur Hermannsson og enn fleiri frá áttunda áratugnum svo ekki ţarf ađ leita langt međ forystusveit á komandi árum.


Taflfélag Vestmannaeyja í 2 sćti í 4 deild

 Ţá er lokiđ fyrri umferđ Íslandsmóti skákfélaga, sem fram fór um helgina.

  Eins og kunnugt er ţá dró TV sig út úr 1 deild í vor og samkvćmt ţví urđum viđ ađ hefja leikinn ađ nýju í 4 deild.

  Ánćgjulegt var ađ sjá hversu margir gamlir félagar vildu leggja félaginu liđ og mćttu til leiks, ţrátt fyrir ađ nokkrir kunnir félagar gátu ekki veriđ međ okkur ađ ţessu sinni, ađallega vegna Lundaballsins í Eyjum, sem var ţessa sömu helgi og mćtti stjórn Skáksambandsins huga ađ ţví viđ skipulagningu í framtíđinni.

  Alls eru ţađ 17 sveitir sem keppa í 4 deild. Eftir fyrstu fjórar umferđirnar erum viđ í 2 sćti međ 7 stig og 18 vinninga, en efstir eru Hrókar alls fagnađar sem viđ mćtum í 5 umferđ í byrjun mars á nćsta ári og ţar verđur án efa hart barist á hverju borđi.

Stađa efstu liđa í 4 deild:
1. Hrókar alls fagnađar        4 0 0   8 stig  20,5 vinn.
2. Taflfélag Vestmannaeyja  3 1 0   7 stig  18,0 vinn.
3. Breiđablik a sveit            3 1 0   7 stig  15,0 vinn.
4. Vinaskákfélagiđ b sveit   3 0 1   6 stig  19,0 vinn.
5. Skákfélag Sauđárkróki    3 0 1   6 stig  17,5 vinn.

  Alls voru ţađ 12 manns sem tóku ţátt fyrir TV, en ţeir voru Arnar Sigurmundsson, Lúđvík Bergvinsson, Ţórarinn I. Ólafsson, Stefán Gíslason, Óli Árni Vilhjálmsson, Dađi Steinn Jónsson, Karl Gauti Hjaltason, Alexander Gautason, Sindri Freyr Guđjónsson, Valur Marvin Pálsson, Jón Ragnarson og Davíđ Árnason.

  Valur Marvin stóđ sig afar vel og sigrađi í öllum sínum fjórum skákum. Ţórarinn fékk 3 vinninga af 4, Stefán 2,5/3, Alexander 2/2 og Arnar 1,5/2. Ţá unnu Sindri Freyr, Dađi Steinn, Jón Ragnarsson og Karl Gauti allir andstćđing sinn.

  Pislahöfundi finnst tími til komin ađ skáksambandsforystan fari ađ huga ađ hentugra husnćđi undir ţessa stćrstu skákkeppni hér innanlands, ţađ er fremur óvistlegt í gluggalausum kjallaranum í Rimaskóla.


« Fyrri síđa | Nćsta síđa »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband